Þetta er sú spurning sem ég hef fengið hvað oftast á þessu ári.
Spurningin er hvimleið en mjög skiljanleg.
Gervigreindin getur skrifað grein á nokkrum sekúndum.
Google svarar sífellt fleiri spurningum í leitarniðurstöðum.
Fólk notar gervigreindina meira en nokkru sinni fyrr.
Fólk eyðir miklum tíma á TikTok, LinkedIn, Reddit, og YouTube
Þá vaknar spurningin, er enn þess virði að skrifa blogg árið 2026?
Svarið er já. En ekki á þann máta sem flest fyrirtæki gera í dag.
Blogg virka enn vel þegar þau hjálpa fólki að skilja eitthvað betur, leysa vandamál, bera saman valkosti eða taka betri ákvörðun.
Þau virka hins vegar ekki þegar tilgangurinn er eingöngu að birta efni reglulega eða elta leitarorð með almennum og innihaldslausum greinum.
Sú útgáfa af bloggi er orðin þreytt. Og satt að segja má hún alveg deyja út.
Blogg eru ekki dauð - þau hafa bara breyst
Internetið þarf ekki enn eina greinina sem heitir „10 bestu staðirnir til að sjá norðurljós á Íslandi“ eða „5 hlutir sem þú verður að gera á Gullna hringnum“. Slíkar greinar eru orðnar óteljandi og gervigreindin getur búið þær til á nokkrum sekúndum.
Það sem fólk leitar eftir er efni sem byggir á reynslu, raunverulegri þekkingu og sjónarmiðum sem bæta einhverju nýju við umræðuna.
Blogg eru ennþá ein besta leið fyrirtækja til að deila þekkingu sinni. Þar geta þau svarað spurningum á ítarlegan hátt, útskýrt flókin málefni og hjálpað fólki að skilja hvernig þau vinna og hugsa. Þannig geta fyrirtæki byggt upp traust og sýnt sérþekkingu áður en einhver hefur samband, biður um tilboð eða kaupir þjónustu.
Landslagið hefur breyst og nú eru gerðar meiri kröfur til bloggfærslna. Gervigreindin auðveldar framleiðslu á efni í lægri gæðum. Þar af leiðandi hefur slíkt efni minna gildi en áður.
Ef bloggið þitt er bara safn af yfirborðskenndum færslum sem eru skrifaðar til að þóknast SEO-tólum, þá er ólíklegt að það skili árangri. Ef það endurspeglar raunverulega reynslu, skýra hugsun og gagnleg ráð, þá getur það enn virkað mjög vel.
Af hverju blogg skipta enn máli
1. Fólk leitar enn að svörum
Leitin hefur breyst, en fólk er enn að leita.
Leitin fer ekki lengur fram á einum stað. Eins og fram hefur komið þá notar fólk Google, YouTube, Reddit og ChatGPT til að finna svör og ber síðan saman upplýsingar úr ólíkum áttum.
Hegðunin hefur breyst en þörfin er enn til staðar.
Þegar fólk byrjar að leita er það sjaldnast tilbúið að kaupa. Það er enn að afla sér upplýsinga, skoða möguleika og bera saman ólíkar lausnir. Ef fyrirtæki getur hjálpað á þeim tímapunkti eru meiri líkur á að það verði fyrir valinu þegar ákvörðunin er tekin.
Góð bloggfærsla gefur fyrirtækinu tækifæri til að svara spurningum sem fólk hefur áður en það tekur ákvörðun.
Til dæmis:
Hver er þjónustan?
Er hún peningana virði?
Hvað þarf ég að vita áður en ég vel þjónustuaðila?
Hverjar eru áhætturnar?
Hvernig lítur góð lausn út?
Hvaða mistök ætti ég að forðast?
Þegar bloggfærslur svara þessum spurningum verða þær meira en bara SEO-efni. Þær verða gagnlegar fyrir lesandann. Þetta eykur líkurnar á að fólk treysti fyrirtækinu þegar kemur að því að velja þjónustuaðila.
2. Blogg byggja upp traust á hátt sem auglýsingar geta ekki
Auglýsingar eru góðar til að ná athygli og koma fyrirtækinu þínu á framfæri. Þær geta aukið sýnileika og komið skilaboðunum til rétta hópsins.
En traust byggist sjaldnast á auglýsingum einum saman. Þar hafa blogg ákveðið forskot.
Flestir vilja kynna sér málin áður en þeir taka ákvörðun. Þeir vilja skilja valkostina, bera þá saman og finna sjálfir hvað hentar best.
Sterkt blogg getur hjálpað þeim í því ferli. Það sýnir sérþekkingu fyrirtækisins á gagnlegan hátt, án þess að upplifunin verði of söludrifin. Lesandinn fær svör, skýringu eða nýja innsýn áður en hann er beðinn um að taka næsta skref.
Í kjölfarið verður fyrirtækið þitt trúverðugra.
Þetta skiptir sérstaklega miklu máli þegar fólk er að velja þjónustu, hugbúnað, ráðgjöf eða aðrar lausnir þar sem ákvörðunin krefst meiri umhugsunar.
Því stærri sem ákvörðunin er, þeim mun meira skiptir máli að fyrirtækið hjálpi fólki að skilja valkostina.
3. Bloggið er þín auðlind
Samfélagsmiðlar skipta máli, en fyrirtæki hafa litla stjórn á því hver sér efnið þeirra. Algóritminn ræður miklu og getur breyst hvenær sem er.
Á eigin vefsíðu hefur fyrirtækið stjórnina.
Blogg á eigin vefsíðu er efni sem fyrirtækið á og stjórnar sjálft. Þar ræður fyrirtækið framsetningu, skilaboðum og upplifun lesenda. Það er ekki háð því að annar vettvangur ákveði hvort eða hvernig efnið nær til fólks.
Það þýðir ekki að samfélagsmiðlar skipti minna máli. Þeir eru oft besta leiðin til að koma efni á framfæri.
En bloggið getur verið góður grunnur í margt. Ein góð grein getur orðið að:
LinkedIn-færslum
Fréttabréfaefni
Söluefni
Stuttum myndböndum
Vefnámskeiðum
Tölvupóstaherferðum
Færslum á samfélagsmiðlum
Bloggið er því sjaldnast endastöðin. Oftar er það upphafspunkturinn sem annað efni byggir á.
Blogg á tímum gervigreindar
Algeng mistök eru að meta árangur bloggs eingöngu út frá smelli.
Það getur líka hjálpað þér að verða sýnilegri í gervigreindarleit.
Gervigreind þarf heimildir. Hún sækir upplýsingar í vefsíður, greinar, skjöl, spjallþræði og sérfræðiþekkingu.
Ef fyrirtækið birtir gagnlegt og vandað efni eru meiri líkur á að það verði hluti af þeim upplýsingum sem fólk finnur.
Það þýðir þó ekki að skrifa eigi fyrir leitarvélar eða gervigreind. Efnið á fyrst og fremst að vera skrifað fyrir fólk.
Þegar efni er gagnlegt, skýrt uppsett og byggt á raunverulegri reynslu og þekkingu eykur það líkurnar á að það finnist, verði lesið og nýtist fólki. Hvort sem það kemur í gegnum Google eða gervigreindartól.
Þjónustur
Frá árangursbirtingum og samfélagsmiðlum til vefstýringar, gagna og CRM, allt undir sama hatti.
Samfélagsmiðlastýring
Markviss nálgun, skapandi efni og stöðug stýring sem skilar árangri á samfélagsmiðlum
CRM
Póstlista, sjálfvirkni og gagnadrifin tengslamyndun
Árangsbirtingar
Gagnadrifin nálgun til að hámarka árangur í fjölbreyttu miðlaumhverfi.
Gögn
Frá mælingu til aðgerða – við hjálpum þér að umbreyta markaðslegu gögnunum þínum í skýran árangur
Vefstýring
Árangursríkur vefur þarf að leiða notandann áfram, svara spurningum og hvetja til aðgerða. Við hjálpum þér að byggja vef sem skilar tilgangi og bjóðum margvíslega þjónustu í þeim efnum.

